Altex með nýja og glæsilega netverslun!

Um miðjan janúar settum við í loftið nýja og glæsilega netverslun fyrir Altex ehf.

Fyrirtækið er fulltrúi Ateljé Margaretha sem er stærsta net- og póstverslun á Norðurlöndum á sviði hannyrðavara. Frá sama fyrirtæki koma einnig vörulistarnir/vörumerkin Åshild og Good Living. Åshild inniheldur mikið úrval af kvenfatnaði og Good Living inniheldur ýmsa hjálparhluti sem auðvelda fólki lífið.

 

Altex ehf er einnig umboðsaðili Magnum, sem eru vinsælir vinnuskór. Hefur Altex um margra ára skeið selt skófatnað til stofnana, fyrirtækja og einstaklinga. Þar má nefna lögreglu, slökkvilið og fyrirtæki innan öryggisgeirans.

Í dag eru um 1000 vörur í versluninni og mun úrvalið aukast jafnt og þétt á næstunni. 
Skoðaðu nýja netverslun Altex hér: https://www.altex.is 

Við óskum Altex til hamingju með glæsilegan vef.