Fyrirtækið Villimey á Tálknafirði framleiðir lífrænt vottaðar snyrtivörur, heilsudrykki og smyrsl í heimsklassa úr villtum íslenskum jurtum. Vörurnar eru lífrænt vottaðar og án allra rotvarna-, ilm- og litarefna. Niðurstöður rannsókna frá Matís sýna að „framleiðsla smyrslanna frá Villimey er í samræmi við ströngustu kröfur varðandi hreinlæti og vönduð vinnubrögð. Engum rotvarnarefnum er bætt í smyrslin. Þau innihalda náttúrulega rotvörn sem kemur frá jurtunum.“
Medilync
Medilync er sprotafyrirtæki á heilbrigðissviði sem er að hanna og þróa nýja tegund af tæki (Insulync) og hugbúnaði til að gera meðhöndlun á sykursýki meðfærilegri fyrir sjúklingana. Hjá fyrirtækinu starfa fjórir sérfræðingar á sviði Tölvunarfræði og lýðheilsu ásamt verktökum á sviði Rafmagnsverkfræði.
Medilync hefur unnið til tveggja Nordic Startup verðlauna, en Nordic Startup Awards er ein stærsta nýsköpunarkeppnin á norðurlöndunum.