Að breyta prófíl eða persónulegri síðu í “Like” síðu
Ef þú hefur sett upp prófíl eða persónulega síðu fyrir félag eða fyrirtæki, getur þú breytt henni í “Like” síðu til að fylgja reglum og auka möguleika á að ná settu markmiði.
Svona ferðu að:
- Þú skráir þig inn á Facebook.
- Þegar prófíl er breytt í “Like” síðu er prófílmynd færð yfir og vinir eru færðir yfir sem einstaklingar sem líkar síðan. Í einhverjum tilfellum eru “Lækin” færri en vinafjöldinn og borgar sig að taka það með í reikninginn þegar ákvörðun er tekin. Engin önnur gögn eru færð yfir, svo það er mikilvægt að taka afrit af öllum gögnum í upphafi til að geta bætt inn síðar.
- Skoðaðu þessa glósu til að sjá hvernig þú tekur afrit af Facebook gögnum.
- Smelltu á þessa slóð til að hefja ferlið.
- Veldu lýsandi flokk og smelltu á “Byrjaðu”
- Sláðu inn lykilorðið sem þú notar til að skrá þig inn á Facebook og smelltu á “Staðfesta”
- Hinkraðu augnablik þar til næsta síða kemur upp. Þar sérðu prófílmyndina og smellir á “Næsta”.
- Á næstu síðu skráir þú grunnupplýsingar og heimasíðu ef við á og smellir á “Save Info”.
- Nú kemur Facebook með tillögu að beinni slóð á síðuna. Ef þú ert sátt(ur) við slóðina smellir þú á “Set Address”, annars getur þú breytt slóðinni.
- Nú er “Like” síðan tilbúin, en eins og áður sagði vantar allar stöðuupfærslur og myndir. Þú getur sótt eldri myndir og stöðuuppfærslur úr afritinu sem þú sóttir í upphafi.